Browsed by
Category: Mannréttindi

Heiður…

Heiður…

…fyrir Michael Moore að vera í sama þætti og Birgitta. Þau eiga það sameiginlegt að ná eyrum fólks um allan heim og eru nógu skynsöm til að láta spillingaröflin ekki þagga niður í sér eða snúa.

Ég hef oft velt því fyrir mér hvað það er sem fær fólk til að skipta um skoðanir, persónu jafnvel, þegar komið er inn á þing. Eru nýjir þingmenn færðir inn í bakherbergi og þeim lagðar reglurnar eða er þerra hræðsla við að missa vinnuna og þá bitlinga sem hún hugsanlega mun gefa? Eru það kannski vissir karakterar sem sækjast í þingmennsku? Fólk sem þráir völd, hvað sem það kostar?

Komist fólk í ríkisstjórn, svo ekki sé minnst á ráðherrastól, ígerist þessi persónuleikabreyting. Það er eins og slökkt sé á persónuleika viðkomandi og nýtt forrit sett inn.

Það verður fróðlegt að sjá hvað þeim Birghittu og Michael fer á milli. Chris Hedges er líka merkilegur maður. Hefur starfað sem blaðamaður í áraraðir og skrifað margar bækur. Hann er duglegur við að standa upp í hárinu á yfirvöldum vestanhafs. Hér fyrir neðan má sjá ýtarlegt viðtal við hann.

(Upphaflega myndbandið sem ég póstaði í janúar 2012 er horfið. Mig minnir að það myndband hafi verið hluti þáttarins. Þetta er allur þátturinn. VGA – 11.05.16)

 

Upphaflega birt vegna þessarar fréttar.

Athugasemdir af Moggablogginu.

Gunnar Th. Gunnarsson 18.1.2012 kl. 14:41

Michel Morre er ómerkilegur pappír… og hreint hlægilegt að hann skuli vera viðurkenndur sem heimildamyndagerðarmaður. Allar hans myndir eru meira og minna falsaðar.

En þessi vinstrimaður græðir á tá og fingri fyrir verk sín, sem er ömurlegt, vegna þess að hann siglir undir fölsku flaggi. Hann er draumóramaður af svipuðum toga og rithöfundarbjálfinn, Andri Snær Magnason.

Villi Asgeirsson 18.1.2012 kl. 15:43

Myndirnar hans vekja fólk til umhugsunar. Flest sem hann segir er rökstutt.

Ég veit ekki betur en að draumórar rithöfundarbjálfians, hafi breyst í alvöru martraðir. Ekki komu Kárhnjúkar í veg fyri kreppu. Held að flest það sem hann hélt fram hafi komið fram.

Ef ég er að bulla, komdu þá endilega með dæmi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir 18.1.2012 kl. 16:12

Sammála þér með Moore og Birgittu, og ég hef verið að hlusta á viðtalið sem þú linkar á á Hedges, er ánægð með hans sýn á hlutina.  Takk fyrir að setja það hér inn.

Arngrímur Stefánsson 18.1.2012 kl. 16:43

það eitt að vekja fólk til umhugsunar getur verið slæmt ef fólkið fær vitlausar staðreyndir til að melta.  Áróður vekur fólk oft til umhugsunar og sé fólk með rangar upplýsingar getur það komist að rangri niðurstöðu.

Villi Asgeirsson 18.1.2012 kl. 18:27

Ekkert að þakka, Ásthildur. Mín er ánægjan. Hin tvö eru vel þekkt á Íslandi en ég efast um að margir þekki Hedges.

Arngrímur. Michael Moore myndirnar eru skemmtilegar og hárbeitt ádeila á bandarískt samfélag. Ég get au’vita’ ekki vottað fyrir það að allt í öllum myndunum sé hreinn sannleikur, en myndirnar og athafnir hans ýfa fjaðrir þeirra sem hefta vilja frelsi einstaklingsing og gera heilsu fólks að söluvöru. Ekkert nema gott um það að segja.

 

Allt í sóma…

Allt í sóma…

Hvað fóru miklir skattpeningar í að redda Kaupþingi? Hvað borgaði Nýja Kaupþing fyrir lánið hennar? Hvað stór hluti höfuðstólsins er vegna verðtryggingar?

Hvernig gengur annars að fella niður skuldir auðmanna?

 

Upphaflega birt vegna þessarar fréttar.

Athugasemdir af Moggablogginu.

Maria Csizmas 17.1.2012 kl. 15:26

Ef þú heitir ekki Þorgerður Katrín þá þetta er svaka erfitt…

Haukur Kristinsson 17.1.2012 kl. 15:51

Eðlilegar og sanngjarnar spurningar. Samtímis þessu fer fyrrverandi kelling Kalla Milestone’s fram á 850 millur. En Kalli var einn af verstu þrjótunum í gróðærinu. Hrikalegt samfélag.

Birkir Traustason 17.1.2012 kl. 18:10

Ógeðslegt að búa í svona þjóð þar sem græðgi glæpamanna bankana ræður, hvenær á að bera þá út úr þeirra heimilum vegna “skulda“ þeirra við þjíðfélagið  ??

Villi Asgeirsson 17.1.2012 kl. 18:28

Þetta er nákvæmlega málið. „Venjulegu fólki“ er hent útá götu meðan bankaelítan heldur áfram að sníkjudýrast og kemst upp með það.

Óskar 17.1.2012 kl. 19:15

Þessi kona bjó í 350 fermetra villu sem hún hafði hætt að borga af fyrir hrun og bjó því frítt þar í 4 ár!  Vorkenni henni bara nákvæmlega ekki neitt enda tilheyrir hún ekki þessu „venjulega fólki “ sem er hent útá gögu eins og Villi orðar það.

Villi Asgeirsson 17.1.2012 kl. 19:40

Verð að viðurkenna að ég þekki mál hennar ekki sérstaklega. Færslan stendur þó, hvort sem þessi kona á vorkunn skilið eða ekki, því fólk er borið út á meðan elítan fær allt niðurfellt.

Sigurður Haraldsson 17.1.2012 kl. 19:50

Það gegnur vel að fella niður skuldir stóru þjófana svo mikið er víst!

Villi Asgeirsson 17.1.2012 kl. 19:55

Engin vandamál þar!

Anna Sigríður Guðmundsdóttir 17.1.2012 kl. 20:46

Skrifaði pistil hér en hann birtist ekki. Kannski ekki rétt orðaður fyrir ritskoðun?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir 17.1.2012 kl. 20:52

Þessi birtist kannski. Ætla bara að bjóða Össuri Skarphéðinssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrími Jóhanni Sigurðssyni, Halldóri Ásgrímssyni og fleiri ógrátandi stjórnsýslukerfis-nauðgurum „góða“ nótt, og „vona“ að þau þurfi ekki að gráta alla nóttina til að ná að sofna út frá áhyggjunum af lífeyrissjóðs-bankarændu fólki á Íslandi!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir 17.1.2012 kl. 20:53

..Sigfússyni átti það að vera.

Villi Asgeirsson 17.1.2012 kl. 21:09

Sammála þér. Vona að þeir missi ekki svefn yfir þessu.

Og hér er ekkert ritskoðað. Ég tel mig geta rökrætt við fólk ef ég er ósammála því.

Óskar 17.1.2012 kl. 21:18

Ef ég hefði búið frítt í 350 fermetra einbýlishúsi í 4 ár þá hefði ég nú varla samvisku í að væla þó ég væri beðinn að finna mér annað húsnæði!

Anna Sigríður Guðmundsdóttir 17.1.2012 kl. 22:30

Villi. Það er gott að vita það. Þá er það álag eða eitthvað annað sem þurrkaði hann út.

M.b.kv.

Villi Asgeirsson 17.1.2012 kl. 22:45

Getur gerst. Það er alveg sérstaklega skemmtilegt þegar maður er búinn að skrifa allt of langan en algerlega meistaralegan pistil. Potar í Vista (senda eða hvað það er) og þá er allt farið. Maður reynir að endurskrifa en það vantar eitthvað.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir 18.1.2012 kl. 00:01

Já Villi, það vantar eitthvað, vegna þess að þetta kemur beint frá hjartanu þá stundina, og sú stund kemur ekki aftur á sama hátt, og yrði bara léleg eftirlíking, ef maður reyndi að endurskrifa.

M.b.kv.

 

Visit Us On TwitterVisit Us On FacebookVisit Us On Youtube